föstudagur, febrúar 10, 2006

Heil&Sæl ;D

Já, ég er mætt aftur eftir langt blogg frí! Ætla bara að halda mér við þessa síðu.. Þetta emmblog kjaftæði er bara rugl! En veriði bara dugleg að kommenta og svona, því að annars nenni ég þessu ekkert :P

Forkeppnin fyrir söngvakeppni Samféss er í kvöld og verður hún haldið á Ólafsfirði þetta skiptið! ÞAð verður örugglega gaman og ég ætla að taka heeelling af myndum fyrir ykkur :]

En annars er bara lítið að frétta.. Búið að vera GEÐVEIKISLEGA mikið að gera síðustu daga.. Skóli, fótbolti, árshátíðarundirbúningur, leikritið & Blönduvision =/
En það er samt alltaf svo gaman af því að Alma er alltaf með mér ;D Hún er nefnilega í pössun hjá mér og verður það örugglega í svona 2-3 viikur (H)
Hann stóri bróðir minn, Tóti, átti afmæli fyrir nokkrum dögum.. 7.feb* og ég vil óska honum innilega til hamingju með 17. árið ;D :*
En þetta verður ekki lengra í þetta skiptið því að ég er að fara að taka mig til fyrir Ólafsfjörð (H)
Bæóó <3

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Sælt veri fókið!

Lítið að gerast í bloggheiminum hjá minni !
Er að rífa mig upp úr veikjindum.. Búin að vera heima síðustu 2 daga = En fór í skólann í dag og það var alveg fínt .. Er samt ennþá með hita . Ég og alma slepptum sundi í dag og vorum að spila og það endaði með smá rifrildi :D hehe Hún er eitthvað ósátt með það hvað ég er góð í stressi og svarta-Pétri (H)

Fer suður á morgun ! :D Hlakka svo til að hitta hann pabba minn .. :D Og Láru og Stebba :* Það verður reyndar geðveikt mikið að gera hjá þeim, eru að setja upp eitthvað verk í Óperunni = En ég verð þá bara með henni Möggu eða eitthvað :D Erum líka að fara að safna saman öllum vinningunum okkar ;D Það var skipt og Heiða fer í staðinn fyrir Svövu af því að hún kemst ekki .

Átti fráááábæra helgi með Ölmu og Önnu . Það var líka náttfatapartý í skjólinu á föstudaginn:) á laugardaginn kom Alma með mér að passa Kristófer og Anton ! Þeir eru sætastir í heimii ! :) Vökstum síðan alveg til 7.. Svaaalar :P haha! Sváfum svo eitthvað fram á dag og svo kom Anna :D Höfðum það bara kósý , borðaði svo hjá Hörpu og Tryggva, Fór í smá bíló með strákunum og fór svo til Ölmu og við fórum til Önnu og svo heim til mín að gera eitthvað heimskulegt ! Drukkum 2 lítra af vatni og hlupum svo upp stigann .. Stelpurnar voru aðeins á undan mér og þegar ég var að stíga annað skrefið í tröppuna þá heyrði ég bara guuusu ! Og þá byrjaði ballið .. Þær gubbuðu í kross alveg á fullu og smá á Simba og svo næstum á mig ! =/ Haha ég var samt bara í kaaaasti ! Ég sá þetta á hlið og þetta kom bara svona alveg beint fram ! :S :D hahaha geðveikt fyndið að horfa á það !
Þetta er helgin í stórum dráttum ..

Ekkert meira að frétta , Bless !

miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Long time..

Jæja , nú er mín búin að vera freeekar löt við það að blogga. Hef reyndar oft sest niður í þeim tilgangi að blogga en svo verður ekkert úr því af því að ég fer alltaf að gera eitthvað annað en núna ætla ég að gera enn eina tilraun.

Á fimmtudeginum hitti ég Önnu um kveldið eftir að ég og Alma kláruðum að selja einhverja miða :) Við vorum bara að tala saman og eitthvað og Guðbjörg var með okkur ! Síðan á föstudeginum fór ég í foreldraviðtal, það gekk bara mjög vel, hún talaði nú bara um að klóna mig :D svo fór ég að vinna klukkan 1 og var búin klukkan 8 og þá hitti ég hana Önnu og við fórum í skjólið og eitthvað svo fórum við heim til Ölmu, ég&Anna&Alma og við vorum bara eitthvað að gera langt fram á nótt fylgdum við Önnu heim og ég gisti hjá henni Ölmu minni :)

Daginn eftir fór mín galvösk í vinnunna eftir svona sirka 3 tíma svefn :D hehe , vorum að fá nýjann frönskupott þarna upp í Esso , en það er nú kannski ekki frásögu færandi nema það hvað greyið Soffía kunni ekkert á pottinn og var að fikta í tökkunum og togaði svo í eitthvað og öll feitin úr pottinum lak niður á gólfið og á tærnar á henni og hún hlaut annars stigs bruna á tánni:') Hún hló nú soldið af þessu sjálf þannig .. Svo þegar ég lauk vinnunni þá kom Anna og við fórum heim til Ölmu og vorum þar í sing-star og eitthvað fórums vo heim um matarleytið og ég steeeein sofnaði.
Vaknaði svo, fór í sturtu og upp í essó með Önnu svo þegar það var lokað þá fórum við smá út og svo kom Inga Jóna að sækja okkur og við fórum heim með henni. vorum þar
bara að horfa á sjónvarpið og svo fórum ég&Anna&Alma að passa hjá Sollu.. Horfðum á Herkúles og sofnuðum svo bara :D vorum búnar eitthvað svona hálf4 um nóttina að passa , en þá fórum við Alma bara að bera út og svo fórum við inn í eyetoy og eitthvað að éta snakk og fleira .. sofnuðum svo yfir *Dude where's my caR ;D ..

Daginn eftir þá fór ég heim og kvaddi mömmu og Hjört því að þau voru að fara til Rvk svo fór ég að vinna klukkan 4 og eftir vinnuna fór ég heim og hringdi í stelpurnar og við vorum bara að gera eeitthvað , svo gisti Alma hjá mér :D éG var nú reyndar eitthvað að sína bardagalistir mínar þá nótt.. Var alltaf að lemjana og gefa henni olnbogaskot :D Múhahahaha. Svo fórum við upp í Essó með Önnu að leigja mynd og borða og fórum svo heim til mín að horfa á hana og svo fór Anna heim á Ak og við Alma fórum að baka fórum svo á badminton æfingu og svo eitthvað að læra fyrir þýskupróf :)

Svo þirðjudagur.. ég Hata þriðjudaga ! =/ skóli frá 8-4 ! En við fengum frí í leiklist í gær :D :D Það var dregið 2 úr bekknum til að fara með Hugrúnu og Heiðari til Rvk að sækja vinningana sem er búið að safna fyrir Bingóið og það verða ég og Svava sem förum :) Svo fór ég á blaðfund klukkan 4 í gær og svo beint á æfingu og svo heim að læra fyrir stærðfræðipróf og svo í sturtu.. Gerði síðan róttækar breytingar í herberginu mínu ;D

Ég er hætt við að fara til Rvk núna um helgina, en fe s.s. næstu til að sækja þessa vinninga .. Pabbi og Lára og Stebbi kútt verða á Íslandi :D Hlakka til að knúsa þau öll :D :*

Æfinga helgi núna þessa helgi :D Það verða tvær æfingar! ;D

En vá ég ætla að hætta núna , þetta er orðið alltooof langt! Bíst ekki við að nein heilvita manneskja nenni að lesa þetta .. Nema kannski Alma :D En hún er líka ekki heilvtur :D Múhahahah ! :* En ég þarf að fara að labba á móti henni því að við erum að fara að taka viðtöl og eitthvað fyrir blaðið !

Bless Fólk ! :*

laugardagur, október 29, 2005

:D

Vúhú ! :D


Ég, Steinunn & Heiða komumst áfram í aðalkeppni stíls :D

Eftir skóla í gær labbaði ég heim með Guðbjörgu, Kareni & Guðmundu. Fórum smá að hoppa í skafla í leiðinni .. ! :D Svo fór ég heim í heitt bað. hitti síðan Steinunni og Heiðu og við fórum að kaupa rósir og eitthvað fórum svo heim til Steinunnar að byrja að gera mig til fyrir stílinn. Það gekk bara mjög vel og var ótrúlega gaman :D Hún móðir mín kom með pizzu fyrir okkur og við átum með bestu lyst :) Svo þegar klukkan fór að nálgast 8 fór stressið sko að koma í ljós, þótt að við værum eigilega alveg tilbúnar ! Svo fórum við bara út í skjól og eitthvað og svo byrjaði keppnin og allt gekk vel :D Líka ógeðslega flott hjá Huldu, Ástu & Margréti :D og líka Jóhönnu, Guggu, Erlu & Guðmundu :)

Hulda

Ég

Jóhanna

Svo eftir keppnina fór ég bara á rúntinn með Ásu og Signýju :D svo kom Hann Brynjar líka smá :) Svo fór ég heim og fór brátt að sofa .. Eða ekki mjög brátt , átti eftir að taka allt úr hárinu mínu og andlitinuu og allt .. en það hafðist :)

Fer svo til Rvk á eftir .. Og hitta hann elskulega faðir minn ! :D Hlakka svo til ;D Svo ætla ég örugglega í bíó með Ölmu :) .. Það var felld niður æfingin í morgun útaf því að það komust svo fáar stelpur útaf veðrinu. Ekki gaman!

En er að fara tl Rvk .. Bæbæ :*

miðvikudagur, október 26, 2005

58 dagar til jóla :D

Bloggletinginn ég er sest hérna eina ferðina enn ..

á mánudaginn var fagnað því að það voru 30 ár eru liðin frá kvennafrídeginum! Ég gekk útur skólanum á slaginu 14:08 ásamt mörgum fleiri konum og við löbbuðum út á sýsluskrifstofu og svo út í félagsheimili og þar var boðið upp á kökur og kaffi og svo voru haldnar ræður og sunginn söngur :)

á þriðjudaginn var íþróttadagurinn og mín byrjaði daginn með trompi og skokkaði 5 km klukkan 8 um morguninn *stolt* :D Svo vorum við að keppa í boccia og fótbolta og baný við kennarana .. Unnum báða leikina í fótboltanum en töpuðum 2-1 fyrir kennurunum í bandý.

á miðvikudaginn var svo bara venjulegur skóladagur , hahah greyið Hákon datt 2 sinnum af stólnum sínum og lá killiflatur á gólfinu :D svo klukkan 1- hálf 4 vorum við í leiklist hjá Guðjóni. Ég fór svo að vinna klukkan 4 og fékk svo að fara rétt fyrir 6 heim .. þá sofnaði ég og vaknaði aftur klukkan hálf 9, horfði þá á sjónvarpið og fór síðan bara aftur að sofa.

í dag fór ég síðan í skólanum og var til hálf 3 og kom heim og er núna í tölvunni, fer svo á æfingu eftir smá. Svo verður generalprufa fyrir stíl í kvöld ! :O Shit maður lifandi , keppnin er bara á morgun !! Gúlp : vonum bara að þetta lukkist.. Þarf síðan að fara að henga upp gardínur eða eitthvað í skjólinu í kvöld.

En við sjáumst bara ... ætla að skella mér á æfingu . bleesss :*

miðvikudagur, október 19, 2005

Kítluð..

Þá er komið nýtt svona dót sem kallast kitl og á maður að segja frá 5 hlutum sem maður getur ekki verið án ..

_* Ég gæti alls ekki verið án allra frábæru vina minna og fjölskyldumeðlima :*

-* Ég gæti alls ekki verið án íþrótta og hreyfingu, elska flest alla hreyfingu.

-* Ég gæti alls ekki verið án rúmsins míns, veit um fátt betra en að kúra upp í rúmi.

-* Ég gæti alls ekki verið án tónlistar, þá væri lífið svo litlaust eitthvað.

ég kítla:

Önnu, Sigríði, Binna, Karó og Hrafnhildi :*

.......................

Var búin í skólanum í hádeginu í dag og fór þá heim og svaf svo eigilega í allann dag .. =/ Veit ekki hvort ég ætla eitthvað út í kveld..

Fer til Barcelona eftir nákvæmlega 2 mánuði ;D

En sjáumst :*

mánudagur, október 17, 2005

Gleymdi að klukka einhver..

Held að flestir séu nú þegar klukkaðir en ætli ég klukki ekki bara :

-*Binna <3
-*Heiðu<3
-*Margréti E <3
-*Svövu<3
-*Auðbjörgu<3

---

Var í skólanum í dag .. Bara fínt . Nema Engin Margrét og engin Alma =/ fór í náttúrufræðikönnun og það gekk bara með prýði .. Eyddi gærkveldinu með Önnu .. Höfðum það kósy heima hjá mér að horfa á mynd . Reyndar ógeðslega leiðinleg. En við förum bara ekkert nánar út í það gott fólk! :D

En er að fara að hrista af mér spikið á fótboltaæfingu .. Bæbæ


Ég og simbi :*

Klukkuð..

Ég var nú klukkuð af Sigríði fyrir all nokkru og hef ekki ennþá komið því í verk að skrifa þessar 5 staðreyndir um mig sem felast í þessu klukki.. En ég ætla að gera það núna :)

-* Ég eeeelska íþróttir og þá aðalega fótbolta .. Gæti ekki lifað án þess að hreyfa mig. Ég dýrka líka tónlist. elska að hlusta á hana og spila hana .. Á það oft til að setjast niður við pianóið og spila og spila en aðalega bara þegar ég er ein.

-* Ég er með mjög feita sál .. Ég ét eigilega alltof mikið. Ef ég myndi ekki hreyfa mig þá myndi ég örugglega ekki vera heilbrigð :D

-* Ég elska ekkert meira heldur en fjölskylduna mína og vini.. Veit ekki hvar ég væri stödd án þeirra. <3

-* Ég er frekar ákveðin manneskja og skipulögð .. Á mjög erfitt með að hafa allt í óreglu í kringum mig.

-* Ég á mjög erfitt með að segja nei við fólk þegar það biður mig um greiða eða eitthvað í þá áttina.

---

Það var eitthvað svokallað *Busaball í skjólinu á föstudaginn og Steinunn, Heiða, Margrét, Fjóla og ég vorum að undirbúa það .. Það heppnaðist líka bara þokkalega vel :) Vaknaði um 9 í gær morgun og fór á fótboltaæfingu klukkan 11 til 1 . Ótrúlega skemmtileg æfing, allar eldri stelpurnar komu. Eftir æfinguna fór ég heim í sturtu og fór svo út með hrafnhildur og margréti. Svo fór ég heim og klukkan hálf 7 komu Fjóla og Signý og við fóprum í fínni gallann og snyrtum okkur og eitthvað og skelltum okkur svo út í félagsheimili á Uppskeruhátíð hjá meistaraflokknum .Ótrúlega gaman :) Svo fór ég að passa hann Patrick, vá hvað hann er mikið krútt :) Var svo komin heim eitthvað um hálf 5 í nótt og fór þá að sofa. Svo vaknaði ég hálf 2 í dag og fór síðan að hitta Signýju og Önnu, vorum með hann Elís Óla með okkur :) Hann er svo mikið krútt! :*

En þetta er komið nóg í bili .. Bæbæ :**